Við viljum byrja á að segja TAKK.
TAKK allir sem komu og hittu okkur á Heimsljósi 19-20 september, það var ómetanlegt og svo gaman að hitta ykkur og spjalla. Takk fyrir stuðningin, peppið og hrósið, við erum svo þakklátar fyrir ykkur og yfirnáttúrulega samfélagið sem við erum að mynda hérna sem fer ört stækkandi. Takk fyrir að hlusta, takk fyrir að deila hlaðvarpinu með vinum og vandamönnum og takk fyrir ykkur, við erum bara mjög þakklátar eftir dásamlega Heimsljós helgi.
Í þessum þætti förum við yfir Heimsljós helgina og förum á andlegt trúnó. Við getum talað endalaust um andleg málefni, okkar upplifanir og það sem við erum að læra alla daga inná okkar næmni og þennan ósýnilega heim sem er svo töfrandi og skemmtilegur! Maður er sko aldrei búinn að læra og það er það sem er svo skemmtilegt við lífið.
Við erum fullar af þakklæti eftir að hafa kynnst helling af dásamlegum andlegum lífverum sem hafa gefið okkur fróðleik, gleði og visku og það er svo gaman að hitta aðra og heyra hvernig þeir skynja og hvernig þeirra næmni er.
Við ræðum um hvernig við upplifðum að transheila tvær saman á eina manneskju og það var vægast sagt magnað og ótrúlega gaman! Við erum bara rétt að byrja og finnum að krafturinn er að koma með haustinu.
Okkur hlakkar til að hitta ykkur aftur og skipulegga skemmtilegan viðburð þannig við getum sem flest hisst, spjallað og nornast saman. Við finnum að það er mikill áhugi fyrir því, enda er bara ekkert skemmtilegra en að vera umkringdur fólki sem er með sömu áhugamál og maður getur verið bara nákvæmlega maður sjálfur og rætt þessa hluti án þess að vera dæmdur stórfurðulegur og mæta bara skilning og áhuga í staðinn!
Við viljum minna á að ef þið viljið segja okkur sögur, deila reynslu, hafið spurningar eða ábendingar þá má alltaf hafa samband og senda okkur póst:
hidyfirnatturulega@gmail.com
Við elskum að heyra frá ykkur! Hafið það gott og takk fyrir ÞIG.
Komdu í áskrift og vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar:
www.patreon.com/hidyfirnatturulega
Mentioned in this episode:
d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift
Galdrabox
Við erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur
Komdu í áskrift