Couverture de Hið yfirnáttúrulega

Hið yfirnáttúrulega

Hið yfirnáttúrulega

De : Ghost Network®
Écouter gratuitement

Offres de saison | 0,99 € par mois pendant les 3 premiers mois

5,99 €/mois par la suite. Des conditions s’appliquent. Annulation mensuelle possible.
Veröldin er full af leyndardómum – og við ætlum að kafa djúpt ofan í hið yfirnáttúrulega. Hið yfirnáttúrulega er hlaðvarp þar sem við ræðum um dulræna hluti á léttu nótunum, með opnum hug en jafnframt gagnrýnum augum. Í þáttunum skoðum við það sem á sér ekki jarðneskar skýringar – dulræn fyrirbæri eins og næmni og drauga yfir í hinar ýmsu samsæriskenningar og undarlega krafta sem mannshugurinn skilur ekki til fulls. Þáttastjórnendur eru vinkonurnar Dagný og Selma sem hafa ávallt haft mikinn áhuga á dulrænum málefnum.Ghost Network® Politique et gouvernement
Épisodes
  • 126. Draugagangur og næmnin er að aukast.
    Oct 19 2026

    Hvað ætli sé í gangi hjá Selmu núna? Það hafa verið skítnir hlutir að gerast hjá henni sem er ekki hægt að útskýra. Ætli hún sé að opnast?

    Þegar næmnin eykst og fólk fer að heyra hluti sem eiga sér ekki sýnilegar útskýringar og breytist skynjunin gjarnan í svokallaða miðilsheyrn, sem getur birst með tvennum hætti. Annars vegar er um að ræða ytri heyrn, þar sem hljóðin virðast koma beint úr líkamlega umhverfinu, eins og fótatak á hæðinni fyrir ofan, bank í veggi, hvísl í tómu herbergi eða hljóð líkt og hlutir séu færðir til. Hins vegar getur hún birst sem innri heyrn, þar sem raddirnar hljóma inni í höfðinu en koma manni samt algjörlega á óvart. Þetta birtist oft sem skýr orð, eigið nafn kallað í hálfsvefni, eða heilu setningarnar sem koma eins og utanaðkomandi hugsanir með öðrum raddblæ en manns eigin innri rödd. Þessar sveiflur eru taldar eðlilegur hluti af því að vera næmur.

    Hægt er að þjálfa þessa skynjun og er hluti af þjálfuninni er að byggja upp traust á eigin skynjun. Sniðugt er að halda dagbók og skrifa niður allt sem þú heyrir eða skynjar, jafnvel þótt það sem þú heyrir eða skynjar virðist ekki meika sense. Með tímanum fer fólk að sjá mynstur, og þegar upplýsingar sem heyrðust reynast síðar eiga við rök að styðjast, styrkist hæfileikinn.

    Komdu í áskrift og vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar:

    www.patreon.com/hidyfirnatturulega

    Afficher plus Afficher moins
    10 min
  • 125. Hin yfirnáttúrulega Geimsýra
    Oct 10 2026

    Áskriftarþátturinn kemur út aðeins fyrr en vanalega þar sem við ætlum að vera með samruna Hins yfirnáttúrulega og Geimsýrunnar einu sinni í mánuði!

    Við og Geimsýran sameinum krafta okkar og ræðum um allt milli himins og jarðar. Gunnar Dan vinur okkar er orðinn góðvinur þáttarins og er hann alger sérfræðingur í Ufo málaflokknum enda búinn að gefa út tvær bækur tengt Ufo.

    Við snertum á allskonar málefnum í flæði og erum að reyna að komast að því hvernig þessi heimur virkar og allt þetta sem tengist hinu yfirnáttúrulega og óútskýrða.

    Komdu í áskrift og vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar:

    www.patreon.com/hidyfirnatturulega

    Afficher plus Afficher moins
    16 min
  • 124. Andleg næturvinna
    Oct 5 2026

    Á meðan líkami þinn hvílist í djúpum svefni, er ekki víst að sálin sé að hvílast, hún gæti hreinlega verið mætt á næturvaktina í öðrum víddum.

    Fyrir næmt og andlegt fólk er svefninn nefnilega ekki bara endurheimt, heldur dularfullur vinnustaður þar sem undirmeðvitundin sinnir stórtækum verkefnum og stundum án þess að viðkomandi viti af því að hann sé að vinna í andlegri vinnu á nóttunni.

    Þessi ósýnilega næturvinna spannar allt frá því að virka sem andleg orkuhreinsun og heilun yfir í að vera leiðbeinandi fyrir týndar sálir sem þurfa hjálp við að finna ljósið. Sumir hafa farið í andlega skóla og gengið inn í risastór dulspekileg bókasöfn og læra nýja visku, á meðan aðrir funda með sálum úr vakandi lífi til að leysa úr karmískum hnútum og gömlum ágreiningi.

    Ef þú vaknar oft úrvinda þrátt fyrir átta tíma svefn, hrokknar upp með öran hjartslátt milli klukkan tvö og fjögur, eða upplifir drauma sem eru svo raunverulegir að þeir skilja eftir sig líkamleg áhrif, þá ert þú mögulega einn af þessum andlegu næturvörðum sem eru að breyta og heila heiminn á meðan restin af mannkyninu sefur.

    Komdu í áskrift og vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar:

    www.patreon.com/hidyfirnatturulega

    Afficher plus Afficher moins
    11 min
adbl_web_anon_alc_button_suppression_t1
Aucun commentaire pour le moment