Épisodes

  • þegar gervigreindin mætir í vinnuna, hvað verður um okkur?
    Oct 2 2026

    Ragnhildur og Hrefna ræða hvað gerist innra með fólki þegar gervigreind kemur inn á vinnustaðinn. Sama breyting getur vakið létti og forvitni hjá einum en óöryggi og ótta hjá öðrum. Þær skoða einnig hvernig óvissa um framtíð starfsins getur haft áhrif á faglega sjálfsmynd, hvers vegna fólk þarf að upplifa að það hafi áfram rödd og áhrif og hvað gerist þegar gervigreind verður ráðgjafi sem er alltaf sammála okkur. Áherslan er á sálfélagslegt öryggi, mannleg samskipti og hlutverk stjórnenda í breytingum sem enginn sér alveg fyrir endann á.

    Afficher plus Afficher moins
    41 min
  • Erfið samskipti og áhrif þeirra
    Sep 15 2026

    Erfið samskipti eru ekki bara óþægileg heldur líka orkufrek. Við skoðum ólíkar útgáfur af erfiðum samskiptum og hvernig þau hafa áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Við rýnum í rannsóknir og kynnum gagnleg ráð þegar samskipti reyna á.

    Afficher plus Afficher moins
    34 min
  • Fjarvistir á vinnustað
    Jun 15 2026

    Fjarvistir eru ekki bara kostnaður. Þær eru skilaboð.Í þessum þætti skoðum við hvað fjarvistir og óheilbrigð viðvera geta sagt okkur um menningu, stjórnun og sálfélagslegt öryggi á vinnustaðnum. Við veltum því einnig fyrir okkur hvers vegna stærsta vandamálið er stundum ekki hverjir eru frá vinnu, heldur hverjir mæta og líður ekki vel.

    Afficher plus Afficher moins
    48 min
  • Þegar eitthvað vantar upp á - Um tómleika í nánum samböndum
    May 13 2026

    Þátturinn fjallar um þá tilfinningu sem mörg pör kannast við en fá tala opinskátt um: Að vera í sambandi þar sem allt virðist í lagi á yfirborðinu en samt ríkir fjarlægð og einmanaleiki.

    Við skoðum hvað gerist þegar nándin dofnar hægt og rólega, hvers vegna pör detta úr takti og hvernig daglegt álag, samskiptamynstur og óuppfylltar þarfir geta skapað fjarlægð. Við ræðum hvað rannsóknir segja um tengsl og öryggi í samböndum og hvað hjálpar pörum að finna taktinn á ný.

    Þátturinn er fyrir öll sem hafa einhvern tímann spurt sig: "Verður þetta bara svona?" og fyrir þau sem eru í vangaveltu um hvort þau séu að ganga í gegnum tímabundna fjarlægð í sambandinu eða hvort þau séu jafnvel komið á endastöð.

    Afficher plus Afficher moins
    55 min
  • Stjórnun í breytingum: Að leiða í gegnum óvissu og krefjandi tíma
    Apr 27 2026

    Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna hvernig stjórnendur geta leitt fólk í gegnum óvissu, breytingar og erfiða tíma. Þær skoða hvað gerist hjá fólki þegar tilfinningin um öryggi breytist, hvaða mistök stjórnendur gera gjarnan og hvað rannsóknir segja um traust, skýrleika, sýnileika og samkennd í stjórnun.

    Þátturinn er fyrir stjórnendur, mannauðsfólk og alla sem vilja skilja betur hvernig hægt er að skapa öryggi, halda utan um teymi og leiða á mannlegan hátt.

    Heimildir:

    Bakker & Demerouti: Job Demands-Resources Model

    Amy Edmondson: Psychological Safety, Harvard Business School,

    Dan Siegel: Interpersonal Neurobiology

    Brené Brown: Dare to Lead

    Afficher plus Afficher moins
    39 min
  • Þættinum hefur borist bréf: Álag, stjórnun og ábyrgð á vinnustað
    Mar 24 2026

    Í þessum þætti svörum við spurningum frá hlustendum um margvíslegar áskoranir á vinnustað. Við förum beint í það sem raunverulega mótar líðan og samskipti; kulnun, álag, stjórnun og ábyrgð.

    Við ræðum:

    1. Er kulnun stundum misskilin sem skortur á þrautseigju?
    2. Eru stjórnendur gerðir ábyrgir fyrir líðan starfsfólks?
    3. Hvers vegna eru konur ekki teknar jafn alvarlega í ágreiningi?
    4. Hvað á stjórnandi að gera þegar virðing fyrir starfsmanni hverfur?

    Heiðarlegur og einlægur þáttur um flókin mál.

    Afficher plus Afficher moins
    44 min
  • Einelti og óheilbrigð samskipti á vinnustað
    Feb 23 2026

    Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna um óheilbrigð samskipti og einelti á vinnustað, hvernig það verður til og í hvers konar starfsumhverfi það þrífst. Þær fara yfir muninn á ágreiningi og einelti, ræða valdaójafnvægi og mynstur í samskiptum og skoða hvaða þættir í menningu og stjórnun geta ýtt undir eða dregið úr áhættu. Að lokum fara þær yfir hvað er hægt að gera þegar mál koma upp og hvaða forvarnir Skipta mestu máli.

    Afficher plus Afficher moins
    45 min
  • Reiði – ógn eða leiðarvísir?
    Feb 2 2026

    Reiði er oft misskilin tilfinning bæði í einkalífi og starfi. Í þessum þætti kryfjum við reiðina og hvernig hún tengist mörkum, sjálfsvirðingu, valdaleysi og tengslum – og af hverju hún situr svona lengi í okkur. Við skoðum fræðin og hagnýt skref til að vinna með reiði á uppbyggilegan hátt.

    https://www.harrietlerner.com/

    https://hbr.org/2013/11/emotional-agility

    https://drdansiegel.com/

    Afficher plus Afficher moins
    46 min