Couverture de Auðnast

Auðnast

Auðnast

De : Ghost Network®
Écouter gratuitement

Offres de saison | 0,99 € par mois pendant les 3 premiers mois

5,99 €/mois par la suite. Des conditions s’appliquent. Annulation mensuelle possible.
Auðnast er hlaðvarp um heilsu, samskipti og menningu í vinnu og lífi. Við ræðum það sem raunverulega mótar líðan fólks: tengsl, mörk, vald, ábyrgð, streitu, samskipti, tilfinningar og sálfræðilegt öryggi – bæði á vinnustað og í einkalífi. Í hverjum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna, málefni sem spretta beint úr þeirra daglegu störfum í vinnuvernd, meðferð og ráðgjöf. Samtölin byggja á faglegri þekkingu, klínískri reynslu og rannsóknum – en líka á raunverulegum aðstæðum sem fólk þekkir úr eigin lífi. Auðnast er fyrir þau sem vilja: - skilja eigin líðan og samskipti betur - takast á við krefjandi aðstæður af ábyrgð - byggja heilbrigðari vinnustaði og tengsl - sinna sjálfsvinnu með uppbyggilegum hætti Ragnhildur er klínískur sálfræðingur, fjölskyldufræðingur og sérfræðingur í vinnuvernd. Hrefna Hugosdóttir er hjúkrunar- og fjölskyldufræðingur, sérfræðingur í vinnuvernd og sáttamiðlari. Saman stofnuðu þær Auðnast árið 2014 með það að markmiði að efla heilsu, öryggi og velsæld fólks – með áherslu á sálfélagslegt öryggi, sjálfbærni og heilbrigð samskipti.Copyright 2026 Ghost Network® Economie Hygiène et vie saine Management Management et direction Psychologie Psychologie et psychiatrie Relations Sciences sociales
Épisodes
  • þegar gervigreindin mætir í vinnuna, hvað verður um okkur?
    Oct 2 2026

    Ragnhildur og Hrefna ræða hvað gerist innra með fólki þegar gervigreind kemur inn á vinnustaðinn. Sama breyting getur vakið létti og forvitni hjá einum en óöryggi og ótta hjá öðrum. Þær skoða einnig hvernig óvissa um framtíð starfsins getur haft áhrif á faglega sjálfsmynd, hvers vegna fólk þarf að upplifa að það hafi áfram rödd og áhrif og hvað gerist þegar gervigreind verður ráðgjafi sem er alltaf sammála okkur. Áherslan er á sálfélagslegt öryggi, mannleg samskipti og hlutverk stjórnenda í breytingum sem enginn sér alveg fyrir endann á.

    Afficher plus Afficher moins
    41 min
  • Erfið samskipti og áhrif þeirra
    Sep 15 2026

    Erfið samskipti eru ekki bara óþægileg heldur líka orkufrek. Við skoðum ólíkar útgáfur af erfiðum samskiptum og hvernig þau hafa áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Við rýnum í rannsóknir og kynnum gagnleg ráð þegar samskipti reyna á.

    Afficher plus Afficher moins
    34 min
  • Fjarvistir á vinnustað
    Jun 15 2026

    Fjarvistir eru ekki bara kostnaður. Þær eru skilaboð.Í þessum þætti skoðum við hvað fjarvistir og óheilbrigð viðvera geta sagt okkur um menningu, stjórnun og sálfélagslegt öryggi á vinnustaðnum. Við veltum því einnig fyrir okkur hvers vegna stærsta vandamálið er stundum ekki hverjir eru frá vinnu, heldur hverjir mæta og líður ekki vel.

    Afficher plus Afficher moins
    48 min
adbl_web_anon_alc_button_suppression_t1
Aucun commentaire pour le moment