Couverture de Við skákborðið

Við skákborðið

Við skákborðið

De : Útvarp Saga
Écouter gratuitement

À propos de ce contenu audio

Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.© 2026 Útvarp Saga
Les membres Amazon Prime bénéficient automatiquement de 2 livres audio offerts chez Audible.

Vous êtes membre Amazon Prime ?

Bénéficiez automatiquement de 2 livres audio offerts.
Bonne écoute !
    Épisodes
    • Skákskóli Íslands: Björn Ívar Karlsson, skólastjóri Skákskóla Íslands
      Feb 11 2026

      Kristján Örn Elíasson tekur á móti Birni Ívari Karlssyni, skólastjóra Skákskóla Íslands. Björn er með tvær gráður frá Alþjóðaskáksambandinu FIDE. Hann er FIDE-meistari og FIDE-trainer sem þýðir að á einhverjum tímapunkti á skákferli sínum hefur hann öðlaðst a.m.k. 2300 alþjóðleg skákstig og að hann hafi sótt námskeið og staðist próf hjá FIDE sem leiðbeinandi og þjálfari í skák. Eins og oft áður var umræðuefnið fjölbreytilegt en þeir Björn Ívar og Kristján Örn töluðu um Skákskóla Íslands, Pressukeppnina sem er ný leið skólans til æfinga fyrir ungmenni, fjárfestingu skólans í nýjum stórum 98 tommu skjá og öðrum búnað til fjarkennslu, vinsælan skákróbot sem teflir við nemendur, fartölvur og heyrnartól sem og fjölgun iðkenda skólans, bæði í stað- og fjarkennslu. Tölvulistinn hefur verið aðalstyrktaraðili Skákskóla Íslands að baki þessum fjárfestingum eins og svo oft áður. Tíu nemendur skólans fara á morgun til Fredericia í Danmörku til að taka þátt í Norðurlandamóti unglinga dagana 13.-15. febrúar. Einnig ræddu þeir Tata Steel skákmótið, Speed Chess Championship netskákmótið á Chess.com, mikinn áhuga á Reykjavíkurskákmótinu, nýju heimildarmyndina "Queen of Chess" á Netflix sem fjallar um Judit Polgar sterkustu skákkonu allra tíma og margt fleira.

      Afficher plus Afficher moins
      54 min
    • Skák er 90% einbeiting: Björgvin Víglundsson verkfræðingur og Halldór Grétar Einarsson FIDE meistari
      Jan 21 2026

      Gestir skákþáttarins eru Björgvin Víglundsson, verkfræðingur og fyrrverandi Íslandsmeistari öldunga í skák og Halldór Grétar Einarsson, FIDE meistari og formaður meistaraflokksráðs Breiðabliks. Eins og svo oft áður er farið vítt og breitt í umfjöllun um skák en hlusta má á þáttinn í heild sinni í spilaranum.

      Afficher plus Afficher moins
      56 min
    • Þorparinn, togarasjómaðurinn og skákmeistarinn: Ólafur Kristjánsson frá Akureyri
      Jan 14 2026

      Kristján Örn ræðir við Ólaf Kristjánsson, 82 ára fyrrverandi togarasjómann frá Akureyri en hann er öflugur skákmaður. Ólafur kallar sig "Þorparann" því hann fæddist í Glerárþorpi en Akureyri er skipt upp í tvo hluta, þ.e. norðan og sunnan Glerár. Í þættinum segir Ólafur frá samferðamönnum sínum, sterkum skákmönnum á Norðurlandi. Hann talar um upphaf taflmennsku sinnar, skákmót á Akureyri, Íslandsmót skákfélaga, veru sína á sjó og margt fleira.

      Afficher plus Afficher moins
      51 min
    Aucun commentaire pour le moment